Spánarheimili kynnir: Parhús á einni hæð, sem samanstanda af 6 húsum í ibizískum stíl, hönnuð til að bjóða upp á næði, þægindi og mikil lífsgæði.
Hvert hús stendur á sjálfstæðri lóð á bilinu 186,50 m² til 241,50 m² að stærð. Húsin sjálf eru 90 m² og bjóða upp á þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóða stofu og borðstofu, innréttað eldhús, geymslu og vel úthugsað skipulag sem nýtir rýmið til fulls.
Utandyra er einkaverönd, bílastæði og einkasundlaug við hverja eign, fullkomið til að njóta loftslagsins allt árið um kring. Að auki eru húsin með þaksvölum með stórkostlegu útsýni.
Verð frá 459.900 € til 489.900 €
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is