Spánarheimili kynnir: Vandað og velbúð 260 m² einbýlishús í einstöku og lokuðu hverfi í Santa Rosalia, örstuttur gangur (3-5 min) í baðlónið og helstu afþreyingar í hverfinu.
Santa Rosalia er aðeins í 20 min akstri frá Torreviejasvæðinu og rétt í um 5 min akstri eða (4 km) frá strandbænum Los Alcazares. Húsið er nýtt og tilbúið til notkunnar.
Lóðin er sérstaklega rúmgóð, stór sundlaug með led lýsingu, setlaug og jacuzzi (nuddstútum í setlaug)
Þar af er 140 m² kjallari með aukna lofthæð (2,8 m) sem býður upp á upp á mikla möguleika fyrir þá sem vilja hafa fleiri herbergi og gott afþreyingarými eins og t.d. heimabar, bíósal, golfhermi, poolborði, jógahorn eða hvað annað sem fólk dettur í hug. Útgegnt út á litla verönd.
· 4-5 herbergi
· 5 baðherbergi
· Vönduð innbyggð Bosch heimilistæki ísskápur, uppþvottavél, örbyilgjuofn + þvottavél.
· Loftkæling og LED lýsing
· Rafdrifnar myrkvagardýnur
· Vandaðar innréttingar og þrjú vönduð 160cm hjónarúm með höfðagafli og geymsluplássi undir.
· Vönduð úti húsgögn úr áli
· Stórt fjölnota herbergi í kjallara
· Sundlaug með nuddsetulaug og lýsingu
· Sér bílastæði innan lóðar
· Búið að draga í fyrir hleðslustöð fyrir bíl
· Rúmgóð lóð – stærri en flestar á þessu svæði.
· Vatnshreinsunarbúnaður í eldhúsi sem gerir að það sé í lagi að drekka vatnið þar
· Örstutt í flestar afþreyingarnar í hverfinu ca. 5 min labb
Veglegur aukapakki fylgir húsinu - andvirði nær 10 milljónum ísl. kr.
- Loftkæling, sér stýring fyrir hverja hæð – einnig í kjallara
- Lýsingarpakki - öll ljós komin í húsið ásamt led lýsiningu í stigahúsi, utan á húsinu sem gefur húsinu fallega lýsingu að kvöldlagi
- Kjallari standsettur og málaður, parketflísar á gólfi, auka baðherbergi og 1 - 2 herbergjum með útgegnt út á enska verönd.
- Stækkun á sundlaug úr 18 í 32fm
- Útisturta á þaksvölum
- Grá ál úthúsgögn, 8 manna matarborð með stólum ásamt + sófasett og sófaborð.
- Þrjú ný hjónarúm með rúmgafli og vönduðum dýnum
Nánari lýsing um hverfið
Santa Rosalía Lake & Life Resort er lokað, öruggt og fjölskylduvænt hverfi með einstaklega glæsilegum innviðum.
Santa Rosalia svæðið er staðsett 20 min akstri frá Torreviejasvæðinu og rétt í um 5 min akstri (4 km) frá strandbænum Los Alcazares sem liggur við stærsta innhaf Evrópu – Mar Menor – en samnefnt golfsvæði liggur við Santa Rosalía svo og 8 aðrir golfvellir sem eru í um 15 km radíus frá svæðinu.
Nærliggjandi golfvellir má nefna Mar Menor – Roda Golf – La Serana Golf – Hacienda Riquelme – La Torre – El Valle og þannig mætti halda lengi áfram. Í strandbænum Los Alcazares má finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu en miðbærinn er mjög fallegur og ber mikinn sjarma þar sem spænsk menning umsvífur yfir vötnum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is