Markaðsvirði eignar
Kr25.600.000 25.6Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Mjög vandað raðhús á tveimur hæðum með aðgangi að snyrtilegum sameiginilegum sundlaugagarði. Greið aðkoma er að húsinu en húsið stendur út við götuna en fyrir framan húsið er flísalögð lóð þar sem er bæði göngu- og innkeyrsluhlið inn á lóðina. Veröndinni fyrir framan aðalhurðina hefur verið lokað með opnanlegum glerlokunum sem stækka verulega notkunargoldið hússins.
Jarðhæð hússins skiptist í 2 svefnherb. og 1 baðherb. ásamt stofu og eldhúsi en frá eldhúsinu er útgengt út á bakverönd þar sem hægt að ganga áfram upp á einkaþaksvalir. Á þessum þaksvölum er inngangur inn í 3ja svefnherb. sem er nokkuð rúmgott með aðgangi að baðherbergi fyrir innan.
Frá bakveröndinni er útgeng út í sameiginlega garðinni þar sem sameiginlega sundlaugin er fyrir íbuðakjarnann
Góð eign á góðum stað þar sem mjög stutt er í alla þjonustu og verslun enda eign sem er staðsett í borginni Torrevieja
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is