Costablanca suður

suðurSvæÐi
Costablanca

Costablanca SuÐur

Oft er talað um að Costa Blanca suður svæðið afmarkist af borginni Alicante í norðri og Murcia og Cartagena í suðri. Svæðið stendur flestum Íslendingum nærri en Costa Blanca norðursvæðið þar sem þúsundir Íslendinga eiga fasteignir á þessu svæði og er vinsælustu og stærstu sumarhúsahverfi Spánar á þessu svæði.

Costa Blanca suðursvæðið er mjög víðfemt svæði þar sem landslagið er láglendara en norðursvæðið. Einkenni þessa svæðis hefur löngum verið strandirnar og saltvötnin en flestar strandir þessa svæðis hafa verið verðlaunaðar með Bláa Fánanum frá Evrópusambandinu. Til að hljóta þennan heiður þurfa svæði að uppfylla strangar kröfur um hreinleika sjávar, aðbúnað og fleira.
Löngum hefur verið vinsælt að baða sig í saltvötnunum vegna góðra áhrifa leðjunnar og saltsins gagnvart hinum ýmsu sjúkdómum eða svipað og íslendingar þekkja frá Bláa Lóninu
.
Það má einnig segja að það sé eftirtektarvert hve uppbygging hefur verið hröð og mikil á Costa Blanca suður svæðinu. En mesti hagvöxtur fyrir nokkrum árum innan Spánar og Evrópu var á Costa Blanca suður svæðinu. Mikið var byggt og því mikið um nýlegar byggingar og ný hverfi sem teygja sig æ meira suður á bóginn meðfram strandlengjunni og inn í land. Öll hverfi eru lágreist en íbúum svæðisins fer stöðugt fjölgandi þar sem æ fleiri evrópubúar hafa uppgötvað kosti svæðisins og flytjast búferlum til að skjóta þar rótum.

Costa Blanca suður svæðið nær yfir alla flóruna eða allt frá dæmigerðum spænskum þorpum til stórra nútímalegra borga og bæja. Þess má og geta að víða hafa alþjóðleg fyrirtæki og verslanir opnað útibú á þessu svæði en fyrirtæki þessi hafa verið þess áskynja hve evrópubúum hefur fjölgað hratt á svæðinu enda það oftar en ekki kallað “Litla Evrópa” vegna fjölda evrópubúa sem búa á svæðinu. Í mörgum bæjum á Costa Blanca suður svæðinu eru útlendingar í meirihluta og meira að segja hafa útlendingar í sumum bæjum náð inn meirihluta í bæjarstjórnum.  

 

Segja má að Alicante sé þekktasta borg Costa Blanca svæðisins.  Íbúafjöldi hennar er um 300.000 en borgin hefur farið ört stækkandi síðustu ár og er nú vel þekkt hjá ferðamönnum sem frábær staður til að tengja saman sólar- og stórborgarferð. Alicante státar af fallegum ströndum líkt og öll Costa Blanca ströndin gerir. 

Saga borgarinnar nær aftur til forn-Grikkja og Rómverja. Borgin býður upp á fallega kastala og 18. aldar byggingar sem vert er að skoða. Nautaatshringur borgarinnar er einn sá elsti á Spáni og er hann ennþá í notkun. Gamli hluti borgarinnar er hálfgert völundarhús lítilla gatna sem liggja upp í fjallshlíðar. Við þessar götur eru marglitaðar byggingar með eintómum litlum svölum. Þegar upp er komið bíður manns stórglæsilegt útsýni yfir borgina og flóann en höfnin hefur alltaf spilað mikilvægt hlutverk fyrir borgarbúa. Hér áður fyrr var hún einnig notuð fyrir Madrid í inn- og útflutningi en í dag er hún að litlum hluta löndunarstaður en aðallega eru þar siglingarklúbbar, snekkjuhöfn, veitingastaðir og iðandi mannlíf. 

 

Alicante flugvöllurinn er rétt við borgina og er hann aðal flugvöllur svæðisins en allt innanlands- og evrópuflug fer einnig í gegnum hann.  

Torrevieja borg er við Costa Blanca ströndina mitt á milli Alicante til norðurs og Cartagena til suðurs. Torrevieja og svæðið um kring hefur verið hratt vaxandi borg þar sem íbúðar- og verslunarbyggingar hafa sprottið upp í hundruða tali í allar áttir frá borginni. Margir íslendingar þekkja Torrevieja vel enda eiga þúsundir íslendinga fasteignir á þessu svæði. Torrevieja svæðið er svæðið í kringum borgina sjálfa sem og hin nýju íbúðahverfi hafa risið undanfarin ár og eru enn að rísa. Þessi svæði eru í raun nokkur bæjarfélög í kringum borgina og heita ýmsum nöfnun en flestir íslendingar tengja sig við Torrevieja borgina. Íbúar Torreviejasvæðisins eru af öllum þjóðernum en opinber íbúatala Torrevieja borgar er ekki nema rétt um 100.000 en sú tala margfaldast eða upp í 500.000 yfir sumarmánuðina þegar ferðamennirnir streyma að, en ferðamannaiðnaðurinn en aðal tekjulind borgarinnar. 

Torreviejasvæðið er mjög víðfemt svæði eins og áður segir og er það markaðssvæði sem Spánarheimili horfir helst til fyrir sína viðskiptavini enda er hér um að ræða stærsta sumarhúsahverfi sem reist hefur verið á Spáni. Það eru ekki aðeins evrópubúar sem sækjast eftir sumarhúsum á þessu svæði heldur hafa spánverjar búsettir inn í landi sótt mjög á þetta svæði og fjárfest í sumarhúsum. 

Torreviejasvæðið skiptist niður í nokkur íbúðasvæði þar sem nokkuð framboð er af fasteignum til sölu og sjá má á söluskrá Spánarheimilis, en nefna má svæði eins og: Punta Prima, Los Altos, Dream Hills, Los Balcones, San Luis, Torreta, La Mata, Cabo Roig,  Playa Flamenca, La Zenia, Dona Pepa, Aquamarina og þannig mætti lengi telja. 

Hverfaskipulag er mjög gott í þessum íbúðahverfum en öll hverfi eru byggð þannig upp að íbúar í hverju íbúðahverfi hafa ávalt í göngufæri verslunar- og þjónustukjarna þar sem finna má úrval veitingastaða, bari, banka, sérverslanir, matvörubúðir og aðra þjónstuaðila. Frá öllum þessum íbúðahverfum tekur yfirleitt ekki nema um 5-15 min að keyra niður í miðbæ Torreviejaborgar þar sem finna má enn meira iðandi mannlíf og úrval veitingastaða og verslana. 

Íslendingar hafa fjárfest í sumarhúsum mjög víða á Torreviejasvæðinu og í hinum ýmsum íbúðarhverfum og dreifast því nokkuð vel yfir svæðið. Íslendingasamfélagið á svæðinu er nokkuð virkt og eru haldnar reglulegar samkomur og hittingar á svæðinu. Skemmtilegt og fræðandi er að fylgjast með lífi Íslendinga á Spáni í gegnum heimasíðuna www.costablanca.is

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur hér !