Leiguumsjón

Leiguumsjón

Leiguumsjón  - aðstoð við útleigu fasteigna

Ef fasteignaeigandi vill hafa tekjur af sumarhúsi sínu á Spáni getum við tekið eignina í leiguumsjón og séð um allt sem snýr að útleigu eignar – svörun fyrirspurna,  móttöku leigjanda, þrif eignar og annað utanumhald.

Innifalið í leiguumsjón er eftirfarandi:

Koma persónulegum munum eiganda fyrir í geymslu áður en leigjandi mætir ef þess er óskað.

Handhafi lykla og ábyrgðaraðili með eigninni („Keyholder“) – Taka á móti leigjendum og sýna þeim eignina ásamt því að kenna á loftræstinguna, gasið og fara yfir helstu umgengisreglur.

Úttekt á eign fyrir útleigu svo hún uppfylli kröfur leigjenda um aðbúnað svo og öflun útleiguleyfis frá staðaryfirvöldum ef þörf er á.

Innskráning eignar til leigu með myndum og lýsingu inn á leiguvefinn okkar og öll umsjón með bókununum.

Innskráning eignar inn á Airbnb á nokkrum tungumálaum þar sem við erum með stórnotendaaðgang og vera milliliður í öllum samskiptum við áhugasama leigjendur.

Eftirlit með eigninni meðan eign er í leigu.

Þrif á eigninni og á öllu líni milli leigutímabila – Leigjandi greiðir sérstaklega fyrir þrifin í lok leigutímabils.

Svara öllum fyrirspurnum leigjenda sem koma í gegnum síma eða tölvupóst um eignina samhliða því að sinna allri staðarþjónstu á Spáni gagnvart leigjendum og eign.

Öll verð Leiguumsjónar má sjá á Verðskrá Spánarheimila – https://spanarheimili.is/verdskra/

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur hér !