Markaðsvirði eignar
Kr63.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr og flottur kjarni í Finestrat sem er lítill bær upp í fjöllunum í göngufjarlægð frá þjónustu og veitingastöðum og 20 mínútum frá Benidorm og þar má finna fallegar strendur og alls konar afþreyingu.
Kjarninn samanstendur af þremur íbúðarblokkum í stórum lokuðum kjarna með bílakjallara, geymslum, sameiginlegum sundlaugum, líkamsrækt, tennisvöllum og fleira.
Um er að ræða þakíbúðir með 4/3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum og verða íbúðirnar hannaðar með opnu skipulagi með nútímalegu eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu og frá stofunni er aðgengi út á verönd/svalir. Einnig er stigi upp á aðra hæð með einu baðherbergi, opnu rými sem hægt er að nota í hvað sem er og rúmgóðar einkaþaksvalir.
Það fylgir einnig bílastæði og geymsla í bílakjallara með hverri eign.
Stærð frá 189 m2 - 236 m2
Verð frá 440.000 €. - 540.000 €.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is