Markaðsvirði eignar
Kr23.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Mjög vel staðsett, skemmtileg íbúð á 2 hæðum með 20 fm þaksvölum. Stutt er í matvörubúð og fjölda veitingastaða og einungis 2 km eru niður að ströndum Cabo Roig.
Gengið er inn í forstofu og þar inn af er lítið baðherbergi með sturtu. Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu opnu rými og inn af borðstofu er gott eldhús. Úr borðstofu er útgengt á á litlar svalir með útsýni yfir sundlaugargarðinn. Lítil geymsla/þvottahús er jafnframt á hæðinni.
Á efri hæðinni eru 2 svefnherbergi og baðherbergi með baðkari/sturtu og opnanlegum glugga. Úr öðru svefnherberginu er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa út að sundlaugagarðinum. Báðar svalir eignarinnar snúa í suður og jafnframt eru 20 fm þaksvalir þar sem tilvalið er að sóla sig allan daginn eða skella steik á grillið.
Fallegur garður með sameiginlegri sundlaug fylgir eigninni og aðgangur að upphitaðri innilaug, líkamsræktartækjum og sauna. Stæði í bílakjallara fylgir einnig.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is