Markaðsvirði eignar
Kr47.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Spennandi raðhús í San Javier aðeins 600 metra frá ströndinni. Stutt er í flest alla þjónustu og veitingastaði. Aðeins eru 500 metrar í Dos Mares verslunarmiðstöðina. San Javier er skemmtilegur bær sem hefur vaxið hratt síðustu ár og býður upp á flesta þjónustu sem þú finnur í enn stærri bæjum og borgum.
Hver eign er 120 m2 og er með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt notalegri verönd með einkasundlaug, þaksvalir og bílastæði inni á lóð. Á jarðhæð er glæsilegt eldhús opið til stofu og borðstofu ásamt baðherbergi og stóru svefnherbergi með stærðar innbyggðum fataskáp. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi og annað þeirra er svíta með einkabaðherbergi, stóran fataskáp og 14 m2 svalir. Á annarri hæð er gengið út þar sem er stigi sem leiðir upp á 40 m2 þaksvalir sem hafa frábært útsýni.
Innifalið í verði eru raftæki í eldhús, LED speglar inni á baðherbergjum ásamt sturtugleri og uppsetning á loftkælingu.
Verð frá 319.950€ - 399.950 €
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is