Markaðsvirði eignar
Kr39.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Spennandi ný blokk í miðbæ Torrevieja á frábærum stað. Stutt er í flesta þjónustu og veitingastaði og aðeins eru um 5 mínútur að labba á stóru strandlengjuna í Torrevieja. Þar er meðal annars að finna mikið úrval af veitingastöðum og börum, einnig er stór skemmtigarður á strandlengjunni.
Aðeins er ein eign eftir í blokkinni og er sú eign á þriðju hæð. Um er að ræða flotta 110 m2 íbúð með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt flottum svölum sem eru með frábært útsýni til sjávar.
Frá eldhúsi er opið til stofu og borðstofu og frá stofunni er gengið út á svalirnar. Öll svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa og það er gólfhiti inni á baðherbergjunum. Eitt svefnherbergið er líka master svíta og er með einkabaðherbergi en frá master svítunni er líka hægt að labba út á svalirnar.
Í blokkinni er að finna líkamsræktarsal, glæsilegt gufubað ásamt inni og úti sundlaug. Á þakinu er sameiginleg sundlaug og frábært sólbaðssvæði sem eigendur hafa aðgang að.
Hægt er að kaupa bílastæði í kjallara og geymslu frá 19.000€.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is