Markaðsvirði eignar
Kr35.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Skemmtilegar sérhæðir í nýbyggðum kjarna við La Finca Golfvöllinn. Stutt er í alla þjónustu, hvort sem það er gangandi eða akandi yfir í næsta bæ, Algorfa. Á La Finca svæðinu eru 2 litlir kjarnar þar sem að þú finnur litla verslun, hraðbanka og úrval af kaffihúsum og veitingastöðum.
Hver íbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, flottar svalir og glæsilegar þaksvalir. Eldhúsið er stórt og flott og er opið til stofu og borðstofu, frá stofu er gengið út á veröndina. Svefnherbergin eru flott og rúmgóð og eru bæði með innbyggða fataskápa en annað herbergið er master svíta og er því líka með einkabaðherbergi.
Einnig er sameiginleg sundlaug í kjarnanum sem eigendur hafa aðgang að.
Verð frá 239.000€.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is