Aftur á yfirlitssíðu

Raðhús
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0995
€. 159.900

Snyrtilegt og mikið endurnýjað raðhús við saltvötnin í Torrevieja

Kr24.000.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 74 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
33 km
2 km
-
10 km

Markaðsvirði eignar

Kr24.000.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Snyrtilegt raðhús á tveimur hæðum í Torrevieja sem búið er að endurnýja að stórum hluta. Húsið er mjög vel staðsett í lokuðum kjarna með útsýni yfir saltvötnin. Alla nauðsynlega þjónustu er að finna í göngufjarlægð, rétt við Habaneras Mallið, Torrevieja markaðinn sem er á föstudögum og Vatnsrennibrautagarðinn.  Miðborg Torrevieja er ekki nema 4 km. Frábær staðsetning

Raðhúsið sem er á tveimur hæðum er með góðri verönd, svölum og þaksvölum. Einka bílastæði er innan lóðar.
Á jarðhæð er stofa / borðstofa, eldhús,  baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð eru
tvō svefnherbergi og rúmgott baðherbergi.
Eignin hefur fengið gott viðhald og nýbúið að gera hana alla upp. Ný gólfefni á öllu húsinu, bæði baðherbergin að fullu uppgerð, ný eldhústæki, stækkun á verönd ný hlið og geymslusvæði undir veröndinni. Nýjar flísar á öllum útisvæðum ný aircon í öllu húsinu ofl.
Fallegur sameiginlegur sundlaugagarður með grænum svæðum.

Eign sem vert er að skoða.

 

Nánar um svæðið:

Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.