Aftur á yfirlitssíðu

Neðri sérhæð
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1247
€. 275.000

Skemmtilegar neðri sérhæðir við La Finca Golf

Kr41.300.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 69.1 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
33 km
13 km
1 km
8 km

Markaðsvirði eignar

Kr41.300.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Skemmtilegar sérhæðir í nýbyggðum kjarna við La Finca Golfvöllinn. Stutt er í alla þjónustu, hvort sem það er gangandi eða akandi yfir í næsta bæ, Algorfa. Á La Finca svæðinu eru 2 kjarnar þar sem að þú finnur verslanir, hraðbanka, úrval af kaffihúsum og veitingastöðum og aðra þjónustu.
La Finca svæðið er þekkt fyrir glæsilegan golfvöll, eitt glæsilegasta klúbbhús Costa Blanca og frábæra aðstöðu fyrir hverskonar útivist. Á svæðinu er 5 stjörnu hótel, spa og heilsulind.

Hver íbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, flotta verönd bæði að framan og aftan ásamt einkagarði. Eldhúsið er stórt og flott og er opið til stofu og borðstofu en frá stofu er gengið út á veröndina. Svefnherbergin eru flott og rúmgóð og eru bæði með innbyggða fataskápa en annað herbergið er master svíta og er því líka með einkabaðherbergi.

Einnig er sameiginleg sundlaug í kjarnanum sem eigendur hafa aðgang að.

Verð frá 275.000€.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.