Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1031
€. 209.100

Rúmgóðar íbúðir í Almoradí

Kr31.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 124 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
28 km
13 km
-
8 km

Markaðsvirði eignar

Kr31.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Fallegar og rúmgóðar íbúðir í byggingu í bænum Almoradí þar sem finna má alla helstu þjónustu í göngufjarlægð. Þetta verða 4 blokkir á 6 hæðum og í hverri blokk eru 12 íbúðir, þ.e. 2 íbúðir á hverri hæð. Hverri íbúð fylgir sérmerkt stæði í bílakjallara, sérgeymsla á þaksvölum auk afnota af sameiginlegri sundlaug sem er staðsett á þaksvölum.

Gengið er inn í forstofugang, af gangi er gengið inn í svefnherbergin sem eru 3 og annað baðherbergið. Hitt baðherbergið liggur beint inn af hjónaherberginu. Við enda gangsins opnast rúmgóð stofa og borðstofa sem renna saman við eldhúsið. Inn af eldhúsi er lítil geymsla og útgengt er úr stofunni á 14 fm svalir.

Rúmgóðar íbúðir á góðu verði. Verð frá 209.100 €

 

Nánar um svæðið:

Almoradí er um 20.000 manna bæjarfélag og byggist efnahagslíf þess mest á landbúnaði, svo sem grænmetis- og ávaxtarækt. Öll þjónusta er þar við hendina, s.s. verslanir, veitingastaðir, bankar og heilbrigðisþjónusta. Baðstrendur Guardamar er að finna í einungis 15 mínútna akstursfjarlægð og rúman hálftíma tekur að komast á Alicante flugvöll. Í Almoradí má finna rólega, ósvikna spænska stemningu en stutt er í alla afþreyingu ferðamannsins.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.