Markaðsvirði eignar
Kr34.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr raðhúsakjarni í framkvæmdum í Pilar de la Horada sem er fallegur og snyrtilegur bær ca. 15 mínutum frá miðbæ Torrevieja. Mjög stutt er á ströndina í Torre de la Horada en einnig eru hjóla og göngustígar þangað.
Húsin eru staðsett á mjög góðum stað, bæði er stutt í leiksvæði fyrir börn og önnur græn svæði. Að auki er stutt í flest alla þjónustu og marga fjölbreytta veitingastaði.
Um er að ræða eignir sem eru ca. 90 m2 á tveimur hæðum með annaðhvort 2 eða 3 svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergi. Húsin eru hönnuð með nútímalegum stíl og opnu skipulagi þar sem þú hefur flott eldhús, stofu og borðstofu í opnu alrými á jarðhæðinni með aðgengi út á verönd hjá stofunni.
Hægt er að bæta við einkasundlaug á lóðinni fyrir auka 13.900 € ef það er vilji fyrir því.
Tilbúið til afhendingar í júlí 2023
Verð frá 229.500€ - 247.500€
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Pilar de la Horadada er staðsett ca. 3 kílómetra inn í landið frá ströndinni við El Mojon og Torre de la Horada.
Það er um það bil 25 mínútna akstursfjarlægð norður af Murcia San Javier flugvellinum og um það bil einnar klukkustundar aksturs suður af flugvellinum í Alicante. Svæðið var að mestu leyti landbúnaðarsvæði, umkringt markaðsgörðum, aldingarði, sítruslundum og sveitabæjum en síðastliðin ár hefur risið upp öflugt og aðlaðandi svæði sem má segja að sé mjög miðsvæðið ef miðað er við strendur, golfvelli, verslanir ofl. Pilar de la Horada er syðsti bærinn á Costa Blanca og er á bæjarmörkunum við Murcia hérað og skemmtilega strandbæji eins og San Pedro og San Javier. Það má fullyrða að á þessu svæði fær maður mikið fyrir peninginn.