Markaðsvirði eignar
Kr30.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Skemmtilegt og vel búið raðhús í Aldeas de Aguamarina III garðinum í Cabo Roig.
Á jarðhæð
Er falleg stofa með loftkælingu og tungusófa, sem einnig er svefnsófi, ásamt stækkanlegu borðstofuborði og stólum fyrir 6. í stofunni er 43" snjallsjónvarp. Út frá stofunni er hægt að ganga beint út á litla verönd fyrir aftan hus með Weber Q3200 gasgrill , þvottavél og þurrk aðstöðu. Bjart og vel búið eldhús með góðu helluboðri og bakarofn ásamt uppþvottavél og Örbylgjuofni. Út frá eldhúsi er hægt að ganga út á litla verönd. Á jarðhæð er lítið salerni með WC og vaski.
Á 2. hæð
Eru tvö rúmgóð svefnherbergi hjónaherbergið er með hjónarúmi með heilsudýnu loftkæling, fataskáp og kommóðu. Gestaherbergið er með koju fyrir tvö börn og einu einstaklingsrúmi. loftkæling, fataskáp, kommóðu sjónavarp og playstaition. Gott baðherbergi með WC, vaski, innréttingu og baðkari með góðri sturtuaðstöðu.
Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar ásamt borði og tveim stólum. . Á þriðju hæð hússins eru stórar þaksvalir með útsýni til sjávar. Út frá verönd fyrir framan húsið er aðgengi í sameiginlegan sundlaugagarð. Þar er stór sundlaug með nuddpotti, sturtur og gott pláss fyrir sólbekki.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is