Markaðsvirði eignar
Kr45.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýtískuleg einbýli staðsett í San Fulgencio, aðeins 9 km frá La Marina eða Guardamar ströndunum.
Um er að ræða mjög góð kaup og mikið fyrir minna. Húsin sem verða byggð í kjarna 8 einbýlishúsa eru í raun á einni hæð þar sem allt innanrými er á jarðhæð en þaksvalir eru fyrir ofan.
Húsin er 3 svefnherbergja og 2 baðherbergja, opið og bjart eldhús og opnanlegar glerhurðir út í garð þar sem einkasundlaug tekur á móti þér. Húsið sjálft er um 87 fm og þaksvalir um 50 fm. Lóðin er um 173 fm. og er einkabílastæði innan lóðar.
Húsin eru til afhendingar í lok árs 2024.
Verð frá aðeins 299.900€.
Um svæðið:
San Fulgencio er lítill smábær með flestri almennri þjónustu, sbr. verslunum, veitingastöðum ofl. en bærinn liggur við syðri hluta Rojales og er stutt á ströndina á La Marina eða Guardemar, eða um 9 km. Næsti golfvöllur er La Marguesa í Rojales en einungis tekur um 10 mínutur að aka þangað.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is