Markaðsvirði eignar
Kr36.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr og eftirsóttur kjarni er kominn á markaðinn sem samanstendur af 20 íbúðum á 4 hæðum með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Kjarninn verður með sameiginlegri sundlaug og einkabílastæði og geymslu í bílakjallara fyrir hverja íbúð.
Þessi flotti íbúðarkjarni er staðsettur á Orihuela Costa svæðinu eða í Las Filipinas hverfinu sem er við hliðina á Villamartin. Stutt er í margskonar þjónustur, veitingastaði og matvörubúðir og er í aðeins 5 mínútna keyrslu frá fallegu ströndum Orihuela Costa.
Þessar íbúðir eru vandaðar verða hannaðar með hæstu gæðum og í nútímalegum stíl þar sem þú ert með eldhús sem verður opið til stofu/borðstofu og breiðar rúmgóðar svalir. Íbúðirnar á efstu hæð (penthouse) eru einnig með einkaþaksvalir.
Stærð íbúða frá 81 m2 - 91 m2
Verð frá 246.000 € - 289.000 €
Tilbúið til afhendingar í ágúst 2024
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.