Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0720
€. 222.000

Nýr lúxus íbúðarkjarni í Benijófar

Kr33.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 73 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
28 km
8 km
1 km
3 km

Markaðsvirði eignar

Kr33.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:
Nýr og glæsilegur íbúðarkjarni, Waldorf Astoria í bænum Benijófar. Um einungis 30 íbúðir er að ræða í 3 hæða kjarna sbr. íbúðir á jarðhæð, annarri hæð og þakíbúðir.

Kjarninn er með bílastæði og geymslu í bílakjallara ásamt grænu sameiginlegu svæði með glæsilegri sundlaug.

Hver íbúð er með 2 eða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt eldhúsi, borðstofu og setustofu með aðgengi út á svalir með útsýni yfir sameiginlega garðin og fallega nátturu.

Þakíbúðirnar eru með auka baðherbergi og 70-103 m2 þaksvölum og að auki er ein þakíbúð með 2,5 x 2,5 m busl laug. Hægt er að bæta við útieldhúsi. Öllum íbúðum fylgja tæki í eldhúsi.

Stærð frá 73 m2 - 97 m2

Verð frá 222.000€ til 398.000€ (penthouse íbúðir)

Tilbúnar til afhendingar í desember 2025

Um svæðið.
Benijofar er lítill og fallegur bær staðsettur á suður Costa Blanca svæðinu. Næstu bæjir eru Rojales, Ciudad Quesada og strandbærinn Guardemar De Segura en þessir bæjir eru innan við 5-10 mínutur frá í akstri.
Stutt er til Torrevieja og Guardamar del Segura. Í Benijofar er fallegur miðbær þar sem öll þjónusta er við hendina eins og veitingastaðir, matvöruverslanir, almennar verslanir og svo framvegis. Og ekki má gleyma McDonald´s.
Margir Íslendingar hafa með okkar aðstoð fundið draumaeignina í Benijofar.
Vatnsskemmtigarðurinn Aquapark í Rojales er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Benijofar og La Marquesa golfvöllurinn er í ca. 7 mínutna akstursfjarlægð. Til gamans má geta þess að nafnið Benijofar er sótt í Arabísku og merkir "Son of the pearl".

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.