Markaðsvirði eignar
Kr39.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr kjarni í framkvæmdum í flotta Santa Rosalia Lake & Life resort sem er flottur kjarni á góðum stað nálægt Los Alcazares. Eignirnar verða staðsettar í kringum La Reserva sem er risa svæði sérhannað fyrir eigendur til þess að njóta og slaka á. Þarna verður allt sem hægt er að ímynda sér, kristaltært baðlón. golfvöllur, stór græn svæði þar sem eru leiksvæði fyrir börn og fullorðna. Einnig eru íþróttasvæði og strandaklúbbur.
Innan kjarnans er risa svæði sem var upphaflega 9 holu golfvöllur en hefur núna verið breytt í resort. Í miðju 17.000 m2 kristaltæru lóninu eru 2 litlar eyjar og á einni þeirra er strandbar. Einnig er klúbbhús þar sem er veitingastaður og minigolf völlur eingöngu fyrir eigendur. Það eru hjólastígar allt um kring og má segja að svæðið sé algjör paradís.
Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia
Þessi kjarni samanstendur af 4 fjölbýlishúsum með 60 íbúðum og upphitaðri sameiginlegri sundlaug.
Um er að ræða íbúðir á jarðhæð, annarri hæð, þriðju hæð og penthouse íbúðir með einkaþaksvölum með útieldhúsi.
Íbúðirnar á jarðhæð og á miðhæðum verða frá 63 m2 - 69 m2 og með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og verða hannaðar með nútímalegum stíl og opnu skipulagi. Frá stofunni er aðgengi út á svalir.
Eldhúsið kemur fullbúið með ofni, örbylgjuofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og eldhúsháf.
Það fylgir einnig einkabílastæði og geymsla í bílakjallara.
Verð frá 265.000€ - 309.000€.
Tilbúið til afhendingar í mars 2025.
SÉRTILBOÐ: Fólk sem tekur frá eignir í þessum flotta kjarna fær húsgagnakaupauka að andvirði 3.000 €.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is