Markaðsvirði eignar
Kr36.500.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr Vista Azul kjarni í byggingu í Torre de la Horadada, aðeins 50 metrum frá einum af fallegustu ströndum á svæðinu. Torre de la Horadada er notalegur strandbær við Pilar de la Horadada og er ca. 5-10 mín frá Orihuela Costa svæðinu.
Þessi kjarni samanstendur af 13 íbúðum á jarðhæð, annarri hæð og efstu hæð (penthouse). Þetta eru íbúðir með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi en það er ein íbúð eftir á jarðhæð sem hefur 2 svefnhebergi og 2 baðherbergi.
Hver íbúð er með einkabílastæði og geymslu í bílakjallara sem fylgir kjarnanum og penthouse íbúðirnar hafa einkaþaksvalir.
Verð frá 179.900 € - 449.900 €
Tilbúið til afhendingar í júní 2024
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]
Nánar um svæðið:
Pilar de la Horadada er staðsett 3 kílómetra inn í landið frá ströndinni við El Mojon að telja. Dvalarstaðurinn er í um það bil 25 mínútna akstursfjarlægð norður af Murcia San Javier flugvellinum og um það bil einnar klukkustundar aksturs suður af flugvellinum í Alicante. Pilar de la Horadada er fullkomlega staðsett nálægt öruggum sandströndum Mar Menor. Svæðið er að mestu leyti landbúnaðarsvæði; umkringt markaðsgörðum, aldingarði, sítruslundum og sveitabæjum. Hann er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar hefur þar átt sér stað mikil uppbygging á umliðnum árum. Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli sem fullyrða má að séu verðlagt á afar sanngjarnan máta.