Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0710
€. 200.000

Nýleg íbúð á 2. hæð í Villamartin

Kr30.100.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 62 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 1 baðherbergi
43 km
4 km
-
1 km

Markaðsvirði eignar

Kr30.100.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir.
Snyrtileg íbúð á 2. hæð í Sungolf Beach kjarnanum í Las Filipinas hlutanum í Villamartin með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með sundlaug.   Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig.  Einnig fylgir lokuð bílageymsla með fjarstýringu.

Gengið er inn í forstofu og þaðan inní fallega stofu sem einnig er borðstofa og opið er inn í bjart og vel útbúið eldhús.
Frá stofu er rennihurð út á 40 fm flísalagðar suður svalir með fallegu útsýni og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.

Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum með fataskápum, loftkælingu og nýjum rúmum.  Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum, sjónvarpi á vegg og útgengi út á svalir.  Annað rúmgott svefnherbergi er með hjónarúmi og tvíbreiðri koju fyrir ofan hjónarúmið sem hentar fyrir börn, góðir skápar eru í herbergi. Baðherbergi er með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.

Í sameign á milli húsanna er sundlaugargarður með sundlaug í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar, nuddpottur, sturtur og leikvöllur fyrir börn.  Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni.

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.