Aftur á yfirlitssíðu

Þakíbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0089
€. 370.000

Nýjar þakíbúðir í miðbæ Torrevieja

Kr55.600.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 139 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
-
-
-
-

Markaðsvirði eignar

Kr55.600.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Nýtt fjölbýlishús á 4 hæðum með 10 íbúðm í framkvæmdum á frábærum stað í miðbæ Torrevieja aðeins 250 metrum frá næstu strönd og er í göngufjarlægð frá allri þjónusta og veitingastaðum.

Íbúðir sem verða hannaðar með hágæða efnum í nútímalegum stíl með opnu skipulagi.

Það fylgir upphituð sameiginleg sundlaug og finnsk sauna með kjarnanum.

Um er að ræða hágæða þakíbúðir og verða þær frá 139 m2 - 196 m2 með tveimur svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og tveimur fullbúnum baðherbergjum með gólfhita ásamt nútímalegu eldhúsi sem verður opið til stofu og frá stofunni verður aðgengi út á svalir. Einnig verða þakíbúðirnar með einkaþaksvölum.

Verð frá 370.000 €. Aðeins EIN þakíbúð eftir

Tilbúið til afhendingar í október/nóvember 2024

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

 

Nánar um Torrevieja:

Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á
Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag
sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum
sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins
utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af
hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja
njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er
Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með
skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt
og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir
að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á
ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra
innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.