Markaðsvirði eignar
Kr31.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Residencial Serena Views sem er nýr kjarni í byggingu í Los Alcázares sem er einstakt svæði á Costa Cálida, aðeins um 25 mínútur frá Murcia flugvellinum og 55 mínútur frá flugvellinum í Alicante.
Kjarninn mun samanstanda af 32 íbúðum og 9 einbýlishúsum og verður byggður við golfvöllinn „La Serena Golf“ með útsýni yfir Mar Menor sem er stærsta saltvatn/lokaða úthaf í Evrópu. Í sameiginlegum sundlaugagarði eru tvær sundlaugar og græn svæði til leiks eða sólbaða og að auki er bílakjallari undir eignunum.
Í boði eru 2-3 herbergja íbúðir og 3-4 herbergja einbýli.
Eignirnar eru nútímalega hannaðar með háum gæðastaðli og verða afhentar með fullbúnum baðherbergjum, eldhúsinnréttingu (án heimilistækja), uppsetningu fyrir loftræstikerfi, fataskápum, myndadyrasíma ásamt gæða gólf og veggefnum sem enn er hægt að velja um.
Íbúðir: verð frá 209.000 til 359.000 evrur
Einbýlishús: verð frá 519.000 til 599.000 evrur
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón / lokað úthaf um 128 ferkílómetrar að stærð og er hiti ca. 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]