Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0642
€. 355.000

Nýjar lúxusíbúðir með sérinngang og fallegu sjávarútsýni í Finestrat

Kr53.200.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 148 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
44 km
5 km
2 km
1 km

Markaðsvirði eignar

Kr53.200.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir.

Stórglæsilegur íbúðir, hver með sér inngangi. Sérstaklega hannaðar til að aðlagast náttúrunni og landslagi fjallgarðsins við Finestrat sem  gerir þér kleift að njóta stóbrotnu útsýni yfir miðjarðarhafið og Benidorm.

Allur búnaður og aukahlutir inn faldir. Þú þarft aðeins húsgögnin til að gefa heimilinu persónulegan blæ.

Lúxusíbúðir fjölbýli en hver með einkainngangspall  (engin stigagangur)

· 2 svefnherbergi + 2 baðherbergi (1 sér inní hjónaherbergi)

· Sérstaklega stór og verönd með útsýni yfir hafið og  Benidorm

· Hátt til lofts, náttúrleg birta með auka sólstofu

· Bílastæði og sérgeymsla fylgir

· Sameiginleg sundlaug og fallegur sundlaugagarður

· Eldhúsinnrétting kemur með Bosch heimilistækjum

· Uppsetning fyrir loftræstingar 

· Fullbúin baðherbergi með gólfhita

 

Tilbúnar til afhendingar mars 2025

 

Nánar um svæðið:

Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Benidorm tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.