Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0643
€. 252.800

Nýjar íbúðir við La Mata saltvötnin

Kr38.000.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 51 fm
Fjöldi svefnherbergja 1 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 1 baðherbergi
32 km
0.7 km
-
9 km

Markaðsvirði eignar

Kr38.000.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsilegur íbúðar og afþreyingarkjarni þar sem um 250 íbúðir, parhús og einbýli eru í boði. Svæðið sem er um 37.000fm verður með fjölbreyttri afþreyingu fyrir eigendur eigna eins og upphitaðar sundlaugar fyrir fullorðna og börn, strandarsundlaug með sólbekkjum og sólhlífum, heitir pottar, íþróttaaðstaða inni og úti, 5-A stærð af fótboltavelli með gervigrasi, körfuboltavöllur, leiksvæði fyrir börn með tækjum, tennisvellir, paddle vellir, sameiginlegt vinnusvæði (co-working room), SPA, snyrtistofur ofl. ofl. Staðsetning svæðisins er einstakt en það er rétt við La Mata bleiku saltvötnin, rétt við óperuhúsið og Quiron einkaspítalann.  Næsta strönd er í La Mata, 700 metrum frá íbúðakjarnanum.

Í boði eru:
- Íbúðir með 1, 2, eða 3 svefnherbergjum og 1 eða 2 baðherbergjum.  Á jarðhæðum er sérgarður, á hæðum 2. og 3. eru svalir og á efstu hæð eru þaksvalir. Verð frá 210.000 evrur + 13-15% kostnaður.

- Bungalow með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, sérgarði og þaksvölum.
Verð frá 275.000 evrur + 13-15% kostnaður.

- Parhús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, stórum sérgarði og möguleiki er að bæta við einkasundlaug.
Verð frá 472.000 evrur + 13-15% kostnaður.

- Einbýli með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, stórum sérgarði og möguleiki er að bæta við einkasundlaug.
Verð frá 516.000 evrur + 13-15% kostnaður.

Tilbúið til afhendingar í júlí 2025

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.