Markaðsvirði eignar
Kr48.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýjar og fallegar íbúðir í fjölbýlishúsi með stórkostlegu útsýni í Calpe. Húsin eru mjög vel staðsett nálægt strönd og allri þjónustu.
Um er að ræða fjölbýli á 14 hæðum og eru íbúðirnar með ýmist 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými og útgengt er úr stofu á rúmgóðar svalir, jafnframt er útgengt á svalir úr öðru svefnherberginu. Sérmerkt bílastæði fylgir hverri íbúð og lagt verður fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla. Í sameign eru tvær sameiginlegar sundlaugar, leikvöllur fyrir börn, padel völlur, græn svæði og aðstaða fyrir reiðhjól.
Glæsilegar eignir á frábæru og vinsælu svæði sem er algjör paradís fyrir útivistarfólk. Sjón er sögu ríkari!
Verð 331.000 - 451.000 € (2. - 13. hæð).
Nánar um svæðið:
Calpe er eftirtektarverður bær á Miðjarðarhafsströnd Spánar. Hann er þekktur fyrir strendur sínar svo sem Sandy Arenal-Bol og margar aðrar sem þúsundir gesta hafa notið á síðustu árum. Calpe er ein af helstu borgunum í Norður Costa Blanca. Í næsta nágrenni er að finna rómverska svæðið Banos de la Reina þar sem eru grjótskornar sjávarlaugar. Ferðaiðnaðurinn hefur breytt þessari hafnarborg í eina af meginkjörnum búsetu á Costa Blanca. Þar er enda að finna ótrúlegt úrval fasteigna og þjónustan er í takti við það. Enginn ætti að vera í vandræðum að finna sér prýðilega fasteign sem hentar í Calpe.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is