Aftur á yfirlitssíðu

Efri sérhæð
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1417
€. 220.000

Nýjar efri sérhæðir á Vistabella Golf svæðinu

Kr33.000.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 82 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
36 km
13 km
1 km
11 km

Markaðsvirði eignar

Kr33.000.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Nýjar sérhæðir í lokuðu íbúðahverfið á Vistabella golf resort. Svæðið er öryggisvaktað allan sólarhringinn og er í einungis ca. 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Fallegt golfvallarumhverfi með öllum þægindum svo sem verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkana. Svæðið er einnig rómað fyrir frábærar hjólaleiðir og má nefna að Torremendo stöðuvatnið er rétt við svæðið.

Hér er um að ræða efri og neðri sérhæðir í litlum kjarna (einungis 20 eignir) með sameiginlegum garði og sundlaug. Einka bílastæði fylgir hverri eign innan lokaðs kjarnans.

Efri sérhæðirnar koma með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum ásamt eldhúsi sem er opið til stofu/borðstofu og frá stofunni er aðgengi út á svalir með stiga upp á einka þaksvalir sem eru um 72 m2. Útsýni frá þaksvölum er yfir fallega sítrusakra, að saltvötnum og allt út á haf.
Öll tæki í eldhúsi fylgja (ísskápur, uppþvottavél, eldavél, háfur og örbylgjuofn) ásamt loftræstingu (heit og köld) og er hiti í báðum baðherbergis gólfum. Möguleiki á að bæta við útieldhúsi á þaksvölum fyrir 2.950 evrur.

Stærð frá 82 m2 - 99 m2

Verð frá 220.000 €. - 225.000 €.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.