Aftur á yfirlitssíðu

Parhús
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0510
€. 274.000

Ný parhús á La Finca Golf

Kr40.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 90 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
33 km
13 km
1 km
1 km

Markaðsvirði eignar

Kr40.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsilegar nýjar eignir í kjarna við La Finca golfvöllinn, nánar tiltekið við 11 braut.

Um er að ræða þrjár mismunandi eignir, sbr. neðri sérhæðir, efri sérhæðir og parhús. Allar eignir hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugargarði. Allar eignir eiga það sameiginlegt að vera sérstaklega glæsilegar ásamt því að stílhrein hönnun einkennir eignirnar.


Garda 3D, parhús.

Parhúsin eru 3 svefnherbergja og 2 baðherbergja. Á jarðhæð er opið eldhús sem liggur að borðstofu / stofu, 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi. Útgengi á tvo vegu á stóra verönd og garð. Á efri hæð er "master" hjónaherbergi með baðherbergi og stórum þaksvölum.
Verð frá 274.000€ til 289.000€.

Um La Finca svæðið.
Stutt er í alla þjónustu, hvort sem það er gangandi eða akandi yfir í næsta bæ, Algorfa. Á La Finca svæðinu eru 2 litlir kjarnar þar sem að þú finnur litla verslun, ýmsa almenna þjónustu og úrval af kaffihúsum og veitingastöðum.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.