Markaðsvirði eignar
Kr52.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæný einbýlishús staðsett á mjög góðum og eftirsóttum svæði í Villamartin þar sem þú hefur veitingastaði, matvörubúðir og fleiri þjónustur í göngufæri. Þú ert í ca. 5 min að keyra að Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og ca. 10 min niður að næstu strönd á Orihuela Costa svæðinu.
Húsin verð 97 m2 á tveimur hæðum snúa annaðhvort í vestur- eða austurátt með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi með valmöguleika fyrir eigendur að hafa einkasundlaug á lóðinni og verönd á þakinu (solarium)
Á jarðhæðinni verður eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi ásamt opnu alrými með flottu eldhúsi, borðstofu og rúmgóðri stofu með aðgengi út á veröndina. Þú finnur hin tvö svefnherbergin og hitt baðherbergið á efri hæðinni.
Verð frá 349.900€ - 359.900€
Tilbúið til afhendingar í sumar 2023
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.