Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1313
€. 332.000

Ný einbýlishús í Las Heredades

Kr49.900.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 104 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
28 km
10 km
-
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr49.900.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Nýr kjarni einbýlishúsa í Las Heredades sem er lítill bær norður af Orihuela Costa svæðinu, á milli Algorfa og Rojales en  þar er stutt að fara eftir daglegum nauðsynjum eins og á veitingastaði, matvöruverslanir, banka og apótek.

Um er að ræða einbýli sem eru 104 m2 á tveimur hæðum  og eru með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Lóðirnar eru um 170 m2 með bílastæði á lóð og möguleiki er að bæta við einkasundlaug.

Gengið er inn í nútímalegt eldhús sem er opið til stofu/borðstofu og frá eldhúsi er gengið út á verönd. Út frá stofu finnur þú eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi.

Þegar gengið er upp á efri hæðina finnur þú tvö önnur svefnherbergi, bæði með einkabaðherbergi og útgengi á svalir.

Verð frá 332.000€

Fyrstu húsin verða tilbúin til afhendingar í nóvember 2024.

 

Nánar um svæðið:

Algorfa er lítill bær í Alicante-héraði sem staðsettur er á bökkum árinnar Segura. Fólk sem hefur heimsótt Algorfa finnur þar fullkominn stað fyrir heimili við strandlengjuna. Hinn frægi La Finca-golfklúbbur er staðsettur í þessum bæ sem auk annarrar þjónustu rekur fimm stjörnu hótel og verslunarsvæði þar sem má finna úrval veitingastaða. Eitt helsta aðdráttarafl Algorfa er fjölbreytt fasteignaúrval sem í boði er; íbúðir af öllu tagi, raðhús og einbýli. Framfærsla og lífsstíll er á vel viðráðanlegu verði í bænum.

 

Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.