Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0816
€. 364.900

Ný einbýlishús á einni hæð í Los Montesinos

Kr54.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 108 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
28 km
10 km
-
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr54.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsileg einbýlishús (7 einbýli í boði) á einni hæð í Los Montesinos sem er fallegur lítill bær á Orihuela Costa svæðinu. Stutt er í alla þjónustu eins og  veitingastaði, matvöruverslanir, banka og apótek. Habaneras verslunarmiðstöðin er td. í eingöngu 12 mín. akstursfjarlægð og ströndin á Guardemar er í ca. 18 mín. akstursfjarlægð.

Um er að ræða einbýli sem eru 108 m2 á einni hæð og með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Lóðirnar eru frá 214 m2 til 301 m2 með bílastæði á lóð. Hægt er að fá einkasundlaug innan lóðar og þakverönd. Auka kostnaður er vegna þessa.

Gengið er inn í nútímalegt eldhús sem er opið til stofu/borðstofu og frá eldhúsi er gengið út á verönd. Út frá stofu finnur þú herbergja ganginn með þremur svefnherbergjum, þar af eitt með en-suit baðherbergi.

Húsin eru til afhendingar í desember 2025.
Verð frá 364.900€ til 421.900€
+ 13-15 kostnaður.

 

Nánar um svæðið:

Los Montesinos er fallegur spænskur bær um það bil 12 kílómetra inni í landið frá ströndinni í Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð. Bærinn Ciudad Quesada er í ca. 10 mín. akstursfjarlægð sem er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Los Montesinos. Fjöldi golfvalla er í 10-15 mín. akstursfjarlægð eins og Vistabella Golf, La Finca Golf og La Marquesa Golf ásamt fleirri völlum.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.