Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1180
€. 845.000

Ný einbýli í Finestrat

Kr123.000.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 169 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
44 km
5 km
1 km
70 km

Markaðsvirði eignar

Kr123.000.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:
Spánarheimili kynnir:
Nútímaleg stílhrein hönnun og gæði sem sameinast einstaklega vel um er að ræða einbýlishús sem eru í byggingu í íbúðarhverfinu Sierra Cortina, staðsett fyrir ofan Benidorm. Húsin bjóða upp á 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Eignirnar eru á tveimur hæðum, á jarðhæð er rúmgóð, björt stofa og borðstofa með opnu eldhúsi og svefnherbergi með in-suite baðherbergi og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Beinn aðgangur að veröndinni út frá bæði stofu og svefnherberginu. Á efri hæð villunnar eru tvö svefnherbergi til viðbótar, hvert með sér baðherbergi og rúmgóðum innbyggðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með eigin svalir.  Einkasundlaug og fallegur garður. Loftkæling með varmadælu, loftræstikerfi, sjálfvirku vökvunarkerfi fyrir lóð. Ennfremur er stæði á lóð fyrir einn bíl.

Frábær staðsetning er nálægt tveimur golfvöllum, La Marina verslunarmiðstöðinni og fallegum sandströndum Playa Poniente. Aðeins fjörutíu mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Alicante með beinu flugi til Íslands allt árið í kring.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.