Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0817
€. 349.000

Ný einbýli á góðum stað í Torrevieja

Kr52.300.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 105 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
35 km
2 km
-
5 km

Markaðsvirði eignar

Kr52.300.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

7 stk. ný einbýli á góðum stað í Torrevieja, nánar tiltekið við Limonar / Torreta íbúðarsvæðið.
Göngufæri í alla almenna þjónustu, verslanir og veitingastaði. Þetta er fullkomin eign ef þú vilt vera miðsvæðis og geta gengið í allt !
Húsin er á tveimur hæðum með möguleika á að útbúa þaksvalir að auki, þau eru með 3 svefnherbergi og tvö baðherbergi. Einkasundlaug er innan lóðar og einkabílastæði.
Á fyrstu hæð er eitt svefnherbergi og baðherbergi, opið eldhús, stofa / borðstofa, lítil geymsla en úr stofu er útgengi á verönd og í sundlaug. Innréttingar eru bjartar og eru húsin sérlega vel skipulögð. Á 2. hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt svölum. Frá svölum er svo gengið upp á þaksvalir (þarf að panta þær aukalega).

Tilboð út júní 2024 - Aircon (heitt og kalt), öll tæki í eldhús, rafmagnshlerar fyrir glugga innifalið í verði !
Athugið að einbýli no. 1 er tilbúið til afhendingar strax, verð 349.000 evrur + kostnaður !

 

Nánar um svæðið:

Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana
Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.