Markaðsvirði eignar
Kr79.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Ný einbýlishús í byggingu staðsett á flottum stað í Los Altos þar sem öll þjónusta og veitingstaðir er stutt frá. Fjölmargir golfvellir, strendur og verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard eru í ca. 10 -15 mínútna radíus frá hverfinu.
Hágæða einbýli hönnuð í nútímalegum stíl með opnu skipulagi. 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi.
Gengið er inn á jarðhæðinni í opið alrými með rúmgóðri stofu/borðstofu og flottu eldhúsi. Einnig má finna eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi á jarðhæðinni.
Hjá eldhúsinu er stigi upp á efri hæðina og þar má finna hin tvö svefnherbergin og hin tvö baðherbergin. Það er aðgengi á svalir frá báðum herbergjunum á efri hæðinni og svo er stigi upp á stórar þaksvalir með flottu útsýni.
Það er einnig að finna stóran kjallara með bílskúr og geymslu.
Stærð frá 181 m2 upp í 215 m2
Verð 525.000€
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.