Markaðsvirði eignar
Kr170.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Stórglæsilegt einbýli í Altea Nova. Húsið er byggt á tveim hæðum á 1115m2 lóð og hefur æðislegt útsýni til sjávar.
Á jarðhæð er stórt og flott eldhús opið til stofu og borðstofu ásamt einu svefnherbergi og þrem baðherbergjum. Frá stofu er gengið út á stóra verönd sem býður upp á góða sólbaðsaðstöðu með stórri sundlaug sem hefur fallegt útsýni yfir hafið. Einnig er úti eldhús með flottri grill aðstöðu og heitur pottur á veröndinni. Á annari hæð er önnur stofa, þrjú baðherbergi og fjögur svefnherbergi, tvö af þeim byggð með sér baðherbergi og fataherbergi. Eitt svefnherbergi er einnig með stórt master baðherbergi byggt með heitum potti og flottu fataherbergi. Öll svefnherbergi hafa aðgang út á stórar sameiginlegar svalir. Einnig er tveggja dyra bílskúr og geymsla á jarðhæð.
Lokið verður við byggingu 16 mánuðum eftir að kaupsamningur hefur verið undirritaður. Verð 1.176.475€.