Markaðsvirði eignar
Kr119.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Geggjað einbýlishús staðsett í friðsælla rólegri lokaðri götu í Altea Hills. Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin og er í óaðfinnanlegu ástandi.Húsið snýr í suðvestur og er með útsýni yfir Altea, Miðjarðarhafið, fjarlæg fjöll og þorpin í dölunum. Á kvöldin er sólarlagið engu líkt og þegar dimmir má sjá tindrandi ljósin frá Altea, Benidorm og alla leið til Alicante. Á jarðhæðinni er allt á einni hæð; stór og björt stofa/borðstofa með arni , smekklegt nútímalegt eldhús (enduruppgert 2020) með Siemens búnaði og morgunverðarbar sem hægt er að sitja og njóta útsýnisins. Á þessari hæð er einnig rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskápum og sér baðherbergi. Gestasalerni er inn af forstofu. Úti er mjög stór sólrík verönd sem býður upp á bæði yfirbyggð og opið rými þar sem ótrúlegt útsýni er hægt að njóta dag og nótt, allt árið um kring. Niður innri stiga er komið á hæðina fyrir neðan þar sem má finna 3 góð stór tveggja manna gestaherbergi og nútímalegt endurnýjað (2016) baðherbergi. Öll svefnherbergin eru með innbyggðum fataskápum og opnast út á verönd með sjávarútsýni. Undir tvöföldum bílskúr er stór geymsla/hobbyherbergi sem hægt er að breyta í t.d vinnustofu eða hvað sem er.
Um svæðið:
Hvíta strandþorpið Altea á er sannkölluð perla á Costa Blanca og hefur oft verið valið eitt af 10 fallegustu þorpum á Spáni. Vinsæli gamli bær Altea, sem er staðsettur á hæð, með fallegri kirkju og kirkjutorgi er mikilvægasta aðdráttarafl bæjarins. Hægt er að rölta um þröngar götur og njóta einstakrar fegurðar litlu húsana oft skreytt með sérstökum bohemian stíl. Þú getur verslað í einni af mörgum handverksverslunum, borðað góðan mat á einum af fjöldamörgum góðum veitingastöðum og notið stórkostlegs útsýnis yfir ströndina. Strendurnar í Altea eru fullkomnar fyrir strandfrí og laða til sín sólþyrsta ferðamenn alls staðar að úr heiminum.
Frábær staður fyrir alla sem vilja sameina sól og sjó með menningu og sögu.