Markaðsvirði eignar
Kr264.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsileg lúxus villa í Altea sem er bær á milli Benidorm og Calpe. Staðsett í góðu og rólegu hverfi sem er með 24/7 öryggisvörslu þá er þetta staðurinn til þess að slaka á. Stutt er í flest alla þjónustu og veitingastaði. Einnig eru um 10 mínútur að keyra á ströndina og um 20 mínútur að keyra til Benidorm og fara í vinsæla skemmtigarðinn Terra Mítica.
Þessi eign verður byggð á 979 m2 lóð þar sem er innkeyrsla og bílastæði fyrir 2 bíla, bílskúr, heitur pottur og einkasundlaug, ásamt glæsilegri verönd. Húsið er á þremur hæðum og er með 4 svefnherbergi, 4 baðherbergi og 1 klósett. Eldhúsið er stórt og er opið til stofu og borðstofu, frá stofu er gengið út á veröndina þar sem eru frábær útsýni til sjávar.
Á jarðhæð er eldhúsið og stofan ásamt 1 svefnherbergi og baðherbergi. Á annarri hæð eru 3 svefnherbergi, öll með einkabaðherbergi og innbyggða fataskápa.
Það er lyfta í húsinu, gólfhiti á baðherbergjum og innbyggt loftkælingar og hitakerfi.
Innifalið í verði eru raftæki í eldhús.