Aftur á yfirlitssíðu

Þakíbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0367
€. 1.050.000

Lúxus þakíbúð í nýrri blokk á Benidorm

Kr157.800.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 304 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
45 km
0.1 km
1 km
70 km

Markaðsvirði eignar

Kr157.800.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Æðislegar nýjar íbúðir á Benidorm aðeins 100 metra frá ströndinni. Stutt er í flest alla þjónustu og aðeins eru nokkrar mínútur að labba á næsta veitingastað. Þessi blokk er ein af tveim risa blokkum og verða fyrstu íbúðir tilbúnar til afhendingar í ágúst 2022. Frá Benidorm er stutt í nokkra skemmtigarða, m.a. er Terra Mítica og vatnsgarðurinn Aqualandia.

Í þessari blokk verða 280 íbúðir og hægt er að fá 1, 2, 3 og 4 svefnherbergja íbúðir. Hver íbúð er með einkasvalir og hægt er að kaupa bílastæði í kjallara og geymslu. Eigendur munu einnig hafa aðgang að líkamssrækt, heitum pottum og chill svæði. Einnig verða nokkrar sameiginlegar sundlaugar og meðal þeirra verður ein upphituð. Einnig er leiksvæði, barnalaug og krakka klúbb hús fyrir börnin.

Um er að ræða þakíbúð með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi og það er aðeins ein eftir og þessi íbúð er 304m2. Eldhúsið er opið til stofu og borðstofu og frá stofu er gengið út á svalir þar sem er æðislegt útsýni til sjávar. Svefnherbergin eru öll með flotta innbyggða fataskápa og annað svefnherbergið er master svíta og er því með einkabaðherbergi. Í masters svítunni eru stórar glerhurðar þar sem er hægt að ganga út á svalirnar. Það er stigi upp á þaksvalir þar sem er glæsilegt útsýni til Miðjarðarhafsins. Á þaksvölunum er heitur pottur og frábær sólbaðsaðstaða.

Hægt er að kaupa bílastæði í kjallara og geymslu með aukagjaldi.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.