Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0488
€. 804.000

Lúxus einbýli á La Marquesa golfvellinum

Kr119.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 302 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 4 baðherbergi
26 km
5 km
-
-

Markaðsvirði eignar

Kr119.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Stórglæsilegt einbýli sem er til afhendingar strax. Húsið er við 7 braut á La Marquesa golfvellinum, í einungis 35 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante flugvelli. Stutt er á strendur Guardamar og La Marina og iðandi mannlíf Ciudad Quesada er skammt undan en La Marquesa liggur í jaðri Quesada.

Um er að ræða einstakt lúxus einbýli á  2. hæðum með stórum svölum, garði, verönd og 20fm einkasundlaug. Lóðin er mjög stór eða um 445 fm. Stofa, borðstofa og eldhús eru í rúmgóðu opnu rými með aðgengi beint út á verönd. 4 svefnherbergi eru í eigninni og 4 baðherbergi.
Öll tæki í eldhúsi eru innifalin eins og loftkæling (heitt og kalt) í öllu húsinu. Tvö bílastæði innan lóðar.
Sjón eru sögu ríkari . . .

 

Verð 804.000 €

 

Nánar um svæðið:

Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.