Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0215
€. 459.000

Lomas de Cabo Roig, einbýli á einni hæð, frábær staðsetning.

Kr69.100.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 125 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
44 km
2 km
2 km
2 km

Markaðsvirði eignar

Kr69.100.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir;
AÐEINS EITT HÚS EFTIR OG ER ALLT INNIFALIÐ Í VERÐINU, þ.e.a.s. ÖLL HÚSGÖGN, ÞAKSVALIR, HITI Í SUNDLAUG OFL. OFL. !

Stórglæsilega hönnuð einnar hæðar einbýlishús sem eru staðsett í Los Dolses hverfinu neðarlega í Villa Martin eða rétt við hverfaskiptinguna við La Zenia og Cabo Roig.  Um er að ræða 10 hús sem verða tilbúin til afhendingu haustið 2024.

Aðalíbúðarrýmið er um 125 fm að stærð og skiptist í 3 svefnherb. og 2 baðherb en útgengt er frá öllum herbergjunum út á lóð og veröndina. Stofan og eldhúsrýmið er með aukinni lofthæð en frá stofunni er hægt að ganga bæði út á veröndina þar sem sundlaugin er staðsett  svo út á rúmgóðar svalir með útsýni yfir akra og svæði sem ekki verður byggt á. Einnig sést vel til sjávar frá þaksvölunum en hvert hús hefur möguleika á um 66 fm þaksvalir.

Byggingaraðilinn býður kaupendnum upp á klæðskerasaumaða þjónustu sem þýðir að hægt er að klæðskerasauma eignina eftir sínun óskum og þörfum en nefna má efnisval, gólfhita í alla eignina, sólarpanela ofl. ofl.

Stærð lóðar er 389 fm

Lóðin verður afhent fullbúin með flísalagðri verönd svo og sundlaug sem er 3x7 m að stærð.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu og um 15 - 20 min rölt í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.