Markaðsvirði eignar
Kr68.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir;
AÐEINS EITT HÚS EFTIR OG ER ALLT INNIFALIÐ Í VERÐINU, þ.e.a.s. ÖLL HÚSGÖGN, ÞAKSVALIR, HITI Í SUNDLAUG OFL. OFL. !
Stórglæsilega hönnuð einnar hæðar einbýlishús sem eru staðsett í Los Dolses hverfinu neðarlega í Villa Martin eða rétt við hverfaskiptinguna við La Zenia og Cabo Roig. Um er að ræða 10 hús sem verða tilbúin til afhendingu haustið 2024.
Aðalíbúðarrýmið er um 125 fm að stærð og skiptist í 3 svefnherb. og 2 baðherb en útgengt er frá öllum herbergjunum út á lóð og veröndina. Stofan og eldhúsrýmið er með aukinni lofthæð en frá stofunni er hægt að ganga bæði út á veröndina þar sem sundlaugin er staðsett svo út á rúmgóðar svalir með útsýni yfir akra og svæði sem ekki verður byggt á. Einnig sést vel til sjávar frá þaksvölunum en hvert hús hefur möguleika á um 66 fm þaksvalir.
Byggingaraðilinn býður kaupendnum upp á klæðskerasaumaða þjónustu sem þýðir að hægt er að klæðskerasauma eignina eftir sínun óskum og þörfum en nefna má efnisval, gólfhita í alla eignina, sólarpanela ofl. ofl.
Stærð lóðar er 389 fm
Lóðin verður afhent fullbúin með flísalagðri verönd svo og sundlaug sem er 3x7 m að stærð.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu og um 15 - 20 min rölt í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.