Markaðsvirði eignar
Kr148.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir.
Tvær algjörar lúxus penthouse íbúðir við ströndina og torgið í La Mata.
Kjarninn sem er einungis með 12 íbúðir samtals flokkast sem lúxus íbúðarkjarni. Kjarninn er algjörlega miðsvæðis, sbr. stendur við Torre La Mata torgið en þar er úrval veitingastaða, verslana og hið forna virki sem verndaði strendur Spánar allt aftur til 15. aldar.
Íbúðirnar, 5-A og 5-B eru rétt um 100 m2 penthouse íbúðir með 104 m2 þaksvölum þar sem þú ert með óhindrað útsýni yfir Miðjarahafið og aðaltorgið í fallega bænum La Mata sem er rétt við saltvötnin og Torrevieja.
Íbúðirnar eru 3. svefnherbergja og 2. baðherbergja og eru fullbúnar með öllum tækjum (Miele tæki í eldhúsi), víngeymsla (heit og köld), einkasundlaug á þaksvölum, útieldhús á þaksvölum, hiti í öllum gólfum, aircon (heitt og kalt) í allri eigninni, einkabílastæði og geymsla í bílakjallara.
Verð er 998.000 evrur + 13-15% kostnaður.
Íbúðir afhentar í Mars 2025.
Um svæðið.
Eins og við höfum þegar sagt er staðsetningin einfaldlega óviðjafnanleg, bókstaflega skrefi frá ströndinni og umkringd allri þjónustu. Rétt við íbúðarkjarnann er flott úrval af frábærum veitingastöðum, kaffihúsum og börum. La Mata ströndin er talin ein sú besta á Costa Blanca. Að auki er hið fræga saltlón La Mata örstutt frá.