Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0830
€. 200.000

Kósý íbúð alveg við La Mata ströndina

Kr30.500.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 42 fm
Fjöldi svefnherbergja 1 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 1 baðherbergi
31 km
-
-
9 km

Markaðsvirði eignar

Kr30.500.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir.

Eign við ströndina í La Mata.
Íbúðin er í "Gran Playa" íbúðarkjarnanum rétt við ströndina sem gerir þessa staðsetningu óviðjafnanlega.
Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug og grænt svæði til sólbaða ofl. Íbúðin er á fimmtu hæð og er húsið með lyftu.
Rúmgóð stofa og opið eldhús, eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Úr stofunni er gengið út á svalirnar sem snúa í suður og bjóða upp á  eitt glæsilegasta útsýni yfir La Mata ströndina og Miðjarahafið.

Um svæðið.

Eins og við höfum þegar sagt er staðsetningin einfaldlega óviðjafnanleg, bókstaflega skrefi frá ströndinni og umkringd allri þjónustu. Rétt við íbúðarkjarnann er flott úrval af frábærum veitingastöðum, kaffihúsum og börum.
La Mata ströndin er talin ein sú besta á Costa Blanca. Að auki er hið fræga saltlón La Mata örstutt frá.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.