Markaðsvirði eignar
Kr39.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
KEY READY - TILBÚIN TIL AFHENDINGAR !
Flott neðri sérhæð með sérinngangi, staðsett í nýjum kjarna í Los Balcones, stutt frá allri þjónustu og veitingastöðum á svæðinu. Þú ert í ca. 10-15 mín akstursfjarlægð frá fjölmörgum golfvöllum, fallegu ströndum á Orihuela Costa svæðinu og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Íbúðin er um 71 m2 og samanstendur af 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt 50 m2 verönd sem snýr út í sameiginlegan sundlaugagarð. Íbúðin er hönnuð í hágæða og nútímalegum stíl. Eldhús er opið og tengist beint í opið alrými / stofu en frá stofunni er aðgengi út á stóra verönd með útsýni yfir sundlaugasvæðið. Tvö baðherbergi og eru þau bæði með hita í gólfi. Að auki fylgir einkabílastæði og geymsla í bílakjallara.
Verð 265.000€
Þessi eign er tilbúin til að flytja inn (Key Ready)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.