Markaðsvirði eignar
Kr23.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Notalegar íbúðir á góðu verði við La Serena golfvöllinn í Los Alcázares, Murcia héraðinu. Stutt er á ströndina og í næstu þjónustu, veitingastaði og matvörubúðir á svæðinu. Þú ert í ca. 15-20 mínútur að keyra í Cartagena sem er falleg og menningarík spænsk borg og þar finnur þú stóra verslunarmiðstöð.
Um er að ræða íbúðir sem eru ca. 65 m2 með 2 svefnherbergi, 2 baðherbergi, rúmgóðri stofu og fullbúnu eldhúsi. Frá stofunni er aðgengi út á svalir með útsýni yfir golfvöllinn.
Íbúðirnar eru seldar innréttaðar með húsgögnu og með fullbúnum eldhúsum (white goods) Hver íbúð er með einkabílastæði og geymslu. Þú finnur einnig sameiginlega sundlaug í kjarnanum.
Verð 159.000€
Tilbúið til afhendingar (Key Ready)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.