Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1339
€. 109.000

Íbúðir tilbúnar til afhendingar í Águilas

Kr16.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 60 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
129 km
2 km
-
65 km

Markaðsvirði eignar

Kr16.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Íbúðir tilbúnar til afhendingar í Águilas í Murcia héraði. Íbúðirnar eru staðsettar í lokuðum kjarna í útjaðri bæjarins Águilas þar sem öll þjónusta er til staðar. Stutt er á fjölmargar góðar strendur og útsýni er út á sjóinn.

Um er að ræða eignir með 2 svefnherbergjum með góðum fataskápum og 2 baðherbergjum, annað þeirra með baðkari og hitt með sturtu. Jarðhæðir eru með sér verönd/garð, efstu hæðir með 56 fm þaksvölum og íbúðir á öðrum hæðum með 26 fm svalir. Öll heimilistæki, loftkæling, rimlatjöld, ljósa- og húsgagnapakki fylgja með í kaupunum sem og sér bílastæði. Aðgangur að sameiginlegum grænum svæðum og fallegum sundlaugargarði.

 

Verð einungis 109.000 - 150.000 €

 

Nánar um svæðið:

Águilas er dásamleg hafnarborg staðsett á Costa Cálida, syðst við Murcia-ströndina sem liggur að Andalúsíu. Einkenni borgarinnar eru strendur, veiðar og rík menningararfleifð. Sjómennskan sem þar er stunduð fer afskaplega vel saman með fjölbreyttri ferðamannaþjónustu. Hina víðáttumiklu strandlengju er um 34 kílómetrar og þegar við bætist að þar ríkir eins þægileg veðrátta og hugsast getur fer ekki hjá því að Águilas er einn vinsælasti ferðamannastaður Murcia-svæðisins. Endalaust má finna fagrar víkur við strandlengjuna og svo þéttbýli svo sem Las Delicias, sem er eitt allra besta svæði við Miðjarðarhafsströndinni til að stunda köfun. Grýttur sjávarbotninn er kjörið fyrir fjölbreytt lífríki, ekki síst við Fraile-eyju og á svæðinu í kringum klettinn Cape Cope. Fyrir þá sem kjósa fast land til undir sína afþreyingu og heilsubót má finna fjölmargar áhugaverðar gönguleiðir á svæðinu.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.