Markaðsvirði eignar
Kr192.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Bjóðum til sölu 5 glæsileg einbýlishús í byggingu í Campoamor/Cabo Roig og því ekki langt frá stöndu og verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard. Stutt rölt í aðra þjónustu og veitingastaði.
Glæsilegar villur sem sitja á 500 - 582 m2 lóðum og eru þar af leiðandi með stóran garð með einkasundlaug og flottu útisvæði. Þessi hús verða á 3 hæðum með 4 svefnherbergi og 4 baðherbergi + 2 klósett.
Eldhúsið kemur innréttað með ísskáp, ofn, örbylgjuofn, háf, uppþvottavél og helluborði. Stofan kemur með stórum gluggum með aðgengi út á verönd. Þaksvalirnar koma með bar og litlum ísskáp.
Það er einnig bílakjallari með þvottahúsi.
Stærð frá 326 m2 - 398 m2
Verð frá 1.290.000 € - 1.650.000 €
Tilbúið til afhendingar í april 2023 og júní 2023
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.