Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0672
€. 549.000

Glæsilegt einbýlishús í Doña Pepa, Ciudad Quesada

Kr82.500.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 185 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
36 km
8 km
1 km
4 km

Markaðsvirði eignar

Kr82.500.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

SELJANDI SKOÐAR SKIPTI Á EIGN Á ÍSLANDI !
Glæsilegt einbýlishús á frábærum stað í Doña Pepa. Eignin er á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Húsið er í lokuðu einbýlishúsa hverfi sem gefur örygginu mikla og góða vigt (Laguna villas 5*).

Húsið er á um 390 fm lóð en eignin sjálf er um 185 fm. Einkabílastæði fyrir 2-3 ökutæki er innan lóðar, ennfremur fylgja tvö bílastæði og geymsla í lokuðum bílakjallara í nágrenninu.

Lóðin er fallega hönnuð með pálmatrjám, stórri sundlaug, heitum nuddpotti, útisturtu og geymsluskúr svo eitthvað sé nefnt.

Gengið er inn í opna og bjarta setustofu,  til vinstri inn af henni er flott eldhús og borðstofa og beint inn af því er stórt rými sem í dag er nýtt sem þvottahús og búr en útgengt er út í garð frá því rými.

Beint inn af setustofu er baðherbergi með sturtu og stórt svefnherbergi með útgengi út í garð. Gler rennihurðir eru stór partur af hönnuninni sem sameinar inni- og útisvæði á skemmtilegan hátt. Vandaður marmari er á gólfum og innréttingum og eru td. innfelldir rafmagnstenglar víðsvegar í gólfum sem gefur aukið tækifæri til ýmissa nota.

Á 2. hæð eru 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, þar af eitt inn af  hjónaherberginu. Úr öllum svefnherbergjum er útgengi á L-laga svalir/verönd. Hiti er í öllum baðherbergisgólfum.

Öll tæki og búnaður í húsinu er mjög vandaður og má nefna að tæki eru Villeroy & Boch, Hansgrohe og Liebherr. Innbúið er einstaklega vandað og fylgir það með í kaupum þessum fyrir utan einstaka persónulega hluti sem hafa verið listaðir upp.

Um er að ræða einstaka eign á eftirsóttum stað þar sem mikil vinna var lögð í samspil hönnunar, náttúru, nýtingu og notagildis ásamt því besta í efnisvali.

Í næsta nágrenni eru skólar, verslanir, veitingastaðir og önnur almenn þjónusta.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.