Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1323
€. 580.500

Glæsilegt einbýli í nýjum kjarna í Altaona fyrir utan Murcia borg

Kr87.300.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 169 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
66 km
28 km
-
15 km

Markaðsvirði eignar

Kr87.300.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Glæsileg  einbýlishús í Altaona íbúðahverfinu sem er í ca. 15 mín akstri frá Murcia, sem er heillandi borg með allri þjónustu, afþreyingu og fallegum stöðum til að heimsækja. Altaona er staðsett við rætur Sierra de Carraskoy þjóðgarðsins og er öll hönnun umhverfis með það að leiðarljósi að þær verði umlyktar grænum svæðum og með beinan aðgang að gönguleiðum upp fjallið fyrir göngu- og hjólreiða unnendur.

Öll húsin eru á einni hæð og bjóða upp á hagnýtt skipulag sem veitir algjöra ró og næði frá nánasta umvhverfi með sýnu L-laga skipulagi.
Öll hönnun tekur mið af Feng Shui fræðunum en Feng Shui eru forn austurlensk fræði sem fjalla um orkuflæðið sem er allt í kringum okkur og hvernig við getum nýtt okkur það til góðs.

Utsýni frá hverju húsi er einstakt en húsin snúa í suður og með endalausu útsýni yfir golfvöllinn og nærliggjandi svæðin í kring.

Kjarninn kemur með 4 mismunandi tegundum af villum.

Hér er um að ræða Harmony villurnar, þær verða frá 168 m2 og eru á 455 m2 lóðum. Um er að ræða 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum + auka klósetti, opnu hágæða eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu með stórum gler hurðum sem opnast út á verönd með einkasundlaug og flottum garð.

Hver eign kemur með bílastæði á lóðinni ásamt geymslu og þvottahúsi.

Verð frá 580.500€

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.