Markaðsvirði eignar
Kr30.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Stórglæsilegar eignir í nýjum kjarna ca. 2 km frá ströndinni í San Pedro del Pinatar sem er snyrtilegur og rólegur bær í Murcia héraði. Stutt er í alla nauðsynlega þjónustu og veitingastaði og verslunarmiðstöðin Dos Mares er í einungis 10 mínútna akstursfjarlægð frá eigninni.
Um er að ræða 12 eignir í þessari glæsilegu nýbyggingu með flottum sameiginlegum garði með sundlaug. Kjarninn skiptist í íbúðir á jarðhæð og þakíbúðir. Það er kynningartilboð í gangi í takmarkaðan tíma, þar sem heimilistækja- og ljósapakki fylgir með kaupum eigna.
Íbúðirnar á jarðhæð koma með flottri verönd að framan sem er ca. 10 m2. Íbúðirnar eru allar 63 m2 með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, hjónaherbergið kemur með einkabaðherbergi og er svo annað fjölskyldu baðherbergi. Það er flott fullbúið eldhús sem er opið til borðstofu og stofu sem er rúmgóð og með rennihurð með aðgengi út á verönd.
Verð frá 199.950€ upp í 229.950€
Tilbúnar til afhendingar í lok sumars 2024.
Nánar um svæðið:
Sérstök staðsetning bæjarins San Pedro del Pinatar við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurnina á fasteignum þar. Um 14 kílómetra langar strandlengjur skiptast milli innhafsins Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Mikilvægasta ströndin er Playa de La Puntica en þar er að finna falleg lítil hús og spa-svæði sem nær út á hafið.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]